Merkingar

Við notum vörumerkið þitt á flíkurnar og vörurnar sem við seljum - prentun, útsaumur, merkingar og fleira. Flestar aðferðir eru sendar ásamt vörunum sjálfum.

Tegundir af merkingum

Silkiprentun

Silkiprent er endingargóð og vönduð prentaðferð þar sem bleki er þrýst í gegnum fíngert net og yfir á vöruna. Hver litur er prentaður sérstaklega og því hentar aðferðin sérstaklega vel fyrir einföld merki, texta og myndir með fáum, skýrum litum. Þar sem útbúa þarf sérstakt prentmót fyrir hvern lit verður aðferðin hagkvæmari eftir því sem eintökin eru fleiri.

DTF

Skammstöfunin DTF stendur fyrir Direct to Film. Hönnunin er fyrst prentuð á sérstaka filmu og síðan færð yfir á efnið með hita og þrýstingi. Aðferðin skilar skörpum smáatriðum og sterkum litum og hentar bæði fyrir einföld merki og flóknari myndir með mörgum litum, litbrigðum eða ljósmyndum.

Útsaumur

Útsaumur er vönduð og endingargóð merkingaraðferð þar sem merki, texti eða mynstur er saumað beint í flíkina með þræði. Útkoman er stílhrein og fagleg, með áferð sem gefur vörunni vandað yfirbragð. Hönnunin er fyrst útbúin sem sérstök saumaskrá sem stýrir því hvernig merkið er saumað. Hægt er að nota þræði í mörgum litum og velja liti sem passa við merkið eða flíkina. Útsaumur hentar best á efni sem hafa nægan styrk til að bera saumana. Hann hentar því síður á mjög þunn, létt eða teygjanleg efni.

Prentun á auglýsingavörur

Merktar auglýsingavörur eru góð leið til að gera vörumerkið þitt sýnilegt og gefa í leiðinni viðskiptavinum, starfsfólki eða samstarfsaðilum nytsamlega vöru. Merkingaraðferðin fer eftir efni vörunnar, lögun hennar og útlitinu sem óskað er eftir. Algengar aðferðir eru lasermerking, DTF-prent og silkiprent. Okkar auglýsingavörur eru merktar hjá okkar birgjum og koma tilbúnar til landsins.

Pressuð merki

Pressuð merki eru sérgerð merki sem fest eru á flíkur og textílvörur með hita og þrýstingi. Hönnunin er prentuð eða mótuð í merkið áður en það er pressað á vöruna með sérstökum hitapressubúnaði. Merkin geta verið framleidd úr mismunandi efnum og haft slétta, upphleypta eða gúmmíkennda áferð. Þau gefa flíkinni nútímalegt og vandað útlit og henta vel fyrir vörumerki, texta og einföld tákn. Hægt er að framleiða þau í ýmsum litum, stærðum og formum. Þar sem merkið er fest með hita þarf efnið að þola hitann og þrýstinginn við ásetningu. Aðferðin hentar því ekki jafn vel á mjög viðkvæm efni eða flíkur með sérstaka húðun. Ending merkisins ræðst meðal annars af gerð þess, efninu í flíkinni og því hvernig varan er þvegin og meðhöndluð.

Prentun í hálsmál

Prentun í hálsmál, einnig kölluð print-in-label, er merking sem er prentuð beint innan í flíkina í stað hefðbundins saumaðs miða. Þar má birta vörumerki fyrirtækisins ásamt nauðsynlegum upplýsingum um flíkina, til dæmis stærð, efnissamsetningu og þvottaleiðbeiningar. Prentuð hálsmerking gefur flíkinni snyrtilegt og faglegt yfirbragð og er góð leið til að styrkja ímynd vörumerkisins. Þar sem enginn miði er saumaður í hálsmálið er merkingin þægileg við húð og veldur síður ertingu eða óþægindum. Þórarinn merkir hálsmál með silkiprenti (sjá lýsingu á silkiprenti efst á síðunni).

Virkar vel með

  • Fatnaður og fylgihlutir

    Bolir, peysur og lög fyrir prentun og útsaum — grunnur flestra einkennisverkefna.

  • Kynningarvörur

    Töskur, húfur og drykkjaráhöld með greinilegum merkingarsvæðum fyrir viðburði og teymi.

  • Vinnufatnaður

    Jakkar, buxur og hi-vis fyrir krefjandi vinnu — endingargóð efni og staðsetningar.

Ertu með eitthvað í huga sem þú finnur ekki á vefsíðunni?

Hafðu samband og við skoðum hvað við getum búið til saman.